Drumboddstaðir í Biskupstungum, bækistöðvar Arctic Rafting á Suðurlandi.
Drumboddsstaðir í Biskupstungum eru yfirleitt aldrei kallaðir annað en Drumbó. Drumbó er fæðingastaður ævintýraferðamensku á Íslandi og bækistöðvar Arctic Rafting á Suðurlandi. Vinsælustu ferðir okkar byrja á Drumbó; flúðasiglingaferðirnar "RiverFun" og kanósiglingarnar "RiverRide". Í öllum pakkaferðum okkar frá Reykjavík förum við á Drumbó fyrir siglingu og borðum hádegisverð.
Við bjóðum uppá ferðir frá Drumbó daglega, bæði á raftbátum og kanóum, frá 15.apríl til 1.október. Á háannatíma frá (15.maí til 11.september) bjóðum við uppá 2 ferðir á dag, ein kl.10:00 og hin kl.14:00. Hádegismatur er borinn fram frá klukkan 12:00 til 13:30 á þessum tíma árs.
Eftir að hafa fengið að búa hjá bóndanum á Drumboddsstöðum í þónokkurn tíma, fluttum við í okkar eigið húsnæði árið 1997. Síðan þá hafa bæði íslenskir og erlendir ferðamenn heimsótt okkur í sveitastemninguna og kíkt á hinn sívinsæla veitingastað okkar DrumBar. Á DrumBar er til dæmis boðið uppá grill; íslenskt lamb, bakaðar kartöflur og drykki svo eitthvað sé nefnt. Við erum með flotta aðstöðu til að taka móti gestum okkar; við höfum skiptiklefa, sturtur, gufubað, bar og veitingasal. Það er erfitt að toppa fyrsta ískalda bjórinn eftir spennandi ferð niður Hvítá og afslöppun í gufubaðinu.
Drumbó er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Geysi & Gullfossi og það tekur aðeins um 75 mínútur að keyra frá Reykjavík.
Á Drumbó tökum við líka að okkur hverskonar veislu- og fundarhöld, til að fá meiri upplýsingar eða svör við spurningum geturðu sent okkur línu á:
info@adventures.is
Svona kemstu á Drumbó:
Drumboddstaðir eru 98 kílómetra frá Reykjavík og það tekur um það bil 70 mínútur að keyra þangað.
Aktu þjóðveg nr. 1 frá Reykjavík framhjá Hveragerði og beygðu síðan til vinstri á þjóðveg 35 áður en þú kemur að Selfossi. Þú ekur þjóðveg nr. 35 í um 35 mínútur þar til þú ert kominn fram hjá Reykholti.
Þar skiptist leiðin í tvennt:
* Fyrir venjulega bíla og jeppa: Þú beygir ekki við Bræðratungu heldur keyrir 4 km í viðbót og beygir til hægri við Arctic Rafting skilti eftir að þú keyrir framhjá Faxa. Þaðan eltir þú skilti heim að Drumbó.
* Fyrir fólksflutningabíla: Þú beygir til hægri 1 km eftir Reykholt þar sem merkt er “Bræðratunga” inn á veg nr. 359 og beygir síðan til vinstri inn veg nr. 358. Eftir það fylgir þú skiltunum heim á hlaðið á Drumbó.
Click here for English