Rafting á Vestari Jökulsá í Skagafirði Þessi ferð er á erfiðleikastiginu 2+ af 5 mögulegum Ævintýraferðir eru frábær leið til að tengja fólk saman og dýpka vináttu. Að heyra um ævintýri og þjóðsögur árinnar á meðan þið njótið spennu flúðasiglinganna er bæði skemmtileg og lærdómsrík reynsla fyrir alla fjölskylduna. Við hjá Arctic Rafting gerum okkur fulla grein fyrir nauðsyn þess að skapa eftirminnileg ævintýri fyrir bæði börn og fullorðna sem vilja deila ógleymanlegri og skemmtilegri upplifun.
Fjölskylduferðin okkar í Vestari Jökulsá liggur í gegnum yfirþyrmandi og töfrandi gljúfur og er ein af okkar fallegustu og skemmtilegustu ferðum! Ferðin hefst á Hafgrímsstöðum þar sem við byrjum á því að úthluta þátttakendum nauðsynlegan búnað og veitum aðstoð ef þess þarf. Frá Hafgrímsstöðum förum við saman í um það bil 15 mínútna rútuferð inn Vesturdal þar sem ævintýrið hefst með því að fara yfir öryggisatriði og hvernig eigi að beita sér í ánni.
Þaðan leggjum við af stað niður ána, siglum í gegnum fallegt landslag Vesturdals og fljótum inn í töfrandi Jökulsárgljúfrin. Á leiðinni búum við okkur til heitt kakó með vatni sem sýður rétt við árbakkann. Þú gætir ákveðið að fleygja þér fram kletti ofan í ána, fara í vatnsslag eða kannski nýtur þú þess bara að fljóta niður ána og nýtur gullfallegs útsýnisins í gljúfrinu.
Það eru staðfestar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur frá 15. maí til 31. ágúst. Fyrir minnst 4 þátttakendur frá 1. september til 15. september.
Frá Skagafirði:
-Hafgrímsstaðir: Ferðir eru daglega kl. 9:00. Á laugardögum eru brottfarir kl. 10:00 og kl. 14:00.
-Varmahlíð: Ferðir eru daglega kl. 8:30. Á laugardögum eru brottfarir kl. 9:30 og 13:30.
Nánari upplýsingar:
Verð: 7.990 kr á mann
Vegalengd frá Reykjavík: 294 kílómetrar.
Lengd ferðar: 3-4 klst.
Þátttaka: Minnst 2 þátttakendur frá 15. maí til 31. ágúst. 4 þátttakendur frá 1. september til 15. september. Mest 70 manns í hverja ferð.
Aldurstakmark: 12 ára.
Takið með ykkur: Hlýja peysu og buxur, sundföt, föt til skiptanna og handklæði.
Annað: Handklæði: 300 ISK. Vatnsheld myndavél: 3.000 ISK
Samningsákvæði: Allar flúðasiglingar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins staðfesta þátttakendur að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.
Click here for English.