Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Umhverfisstefna Arctic Rafting

Leiðarstefið í starfssemi okkar er „Náttúran er ævintýrið“. Með þetta stef að leiðarljósi gerum við okkur fulla grein fyrir því að náttúra landsins er grunnurinn að starfsemi okkar og lífi og ævintýrum og ánægju viðskipavina okkar. Því höfum við gert okkar besta til að sníða ferðir okkar og starfsemi á þann veg að hún hafi sem minnst áhrif á náttúruna sem slíka. Einnig reynum við eftir fremsta megni að aðlaga starfsemi okkar að nýjustu hugmyndum í vistvænni ferðamennsku. Við förum eftir fjórum meginviðmiðum sem leiðsögumenn okkar eru upplýstir um og koma til skila við viðskiptavina okkar:

Takið ekkert nema myndir.
Eyðið engu nema tíma.
Skiljið ekkert eftir nema fótspor.
Skapið ekkert nema minningar.


Umhverfisábyrgð
Í okkar starfi er óhjákvæmilegt að komast hjá flutningi á fólki og farangri. Til samræmis við það höldum við til að mynda námskeið í vistvænum akstri starfsmenn okkar og greiðum gjald til kolefnisjöfnunar hjá Iceland Carbon Fund (www.kolvidur.is).

Að auki tökum við þátt í náttúruvernd hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands (www.natturuverndarsamtok.is) en samtökin eru frjáls félagasamtök áhugafólks um náttúruvernd þar sem mikilvægasta markmiðið er verndun á miðhálendi Íslands.

Við endurvinnum eins mikið af úrgangi og mögulegt er, bæði á skrifstofum okkar og öðrum bækistöðvum og sjáum auðvitað til þess að ekkert rusl verði eftir í náttúrunni í ferðum okkar.

Í upphafi hverrar ferðar upplýsum við viðskiptavini okkar um hvernig á að ganga um íslenska náttúru í samræmi við góðar hefðir og lög. Leiðsögumenn okkar eru vel meðvitaðir um þá miklu ábyrgð sem fylgir því að að leiða fólk um náttúru landsins og því hafa þeir vanið sig á að vera fyrirmynd þeirra í hvívetna. Sömuleiðis eru þeir meðvitaðir um að hver og ein ferð er sérstök í þessu tilliti, t.d. ber að leggja áherslur á ýmislegt í hellaferðum sem ekki þarf að hafa hugfast í flúðasiglingum og öfugt.

Samfélagsleg ábyrgð
Við reynum að leggja okkar að mörkum til samfélagsins. Til að mynda sendum við alla óskilamuni úr ferðum okkar til Rauða krossins og þar sem við bjóðum upp á heita drykki og internet, viðskiptavinum að kostnaðarlausu, hvetjum við alla til þess að greiða pening í söfnunarbauka Rauða krossins sem standa við drykkina og tölvurnar. Að auki tökum við þátt í fjáröflun fyrir börn í Asíu og styrkjum að minnsta kosti eitt barn á ári til menntunar og matar.

Efnahagsleg ábyrgð
Í öllum ferðum okkar og starfssemi gerum við okkar besta til að notast við íslenskar vörur, hráefni og þjónustu. Ferðir okkar eru eins íslenskar og þær geta gerst og maturinn og nestið sem við bjóðum upp á er rammíslenskt. Til dæmis notumst við aðeins við íslenskt lamb og íslenskan lax og grænmeti og samlokur okkar eru smurðar af íslensku bakaríi með íslensku áleggi. Ef snætt er á veitingahúsum eru það alltaf íslensk veitingahús sem verða fyrir valinu. Nánast öll okkar starfssemi fer fram á landsbyggðinni og reynum við eftir fremsta megni að versla beint við heimamenn.

Click here for English