Hvað gerist ef ég aflýsi ferðinni?
10% af verði ferðarinnar er óafturkræft, þessi prósenta af verðinu hefur verið notuð í að bóka og undirbúa ferðina.
Ef þú hættir við dagsferð með meira en 7 daga fyrirvara færð þú 90% endurgreiðslu.
Ef þú hættir við dagsferð með minna en 7 daga fyrirvara færð þú 70% endurgreiðslu.
Ef þú hættir við dagsferð með minna en 48 tíma fyrirvara færðu ekki endurgreiðslu.
Ef þú hættir við margra daga ferð, þar á meðal gönguferðir og hópeflisferðir, með meira en 4 vikna (28 daga) fyrrivara færðu 90% endurgreiðslu.
Ef þú hættir við margra daga ferð með minna en 4 vikna (28 daga) fyrirvara færðu 50% endurgreiðslu.
Ef þú hættir við margra daga ferð með minna en 48 tíma fyrirvara fæst ekki endurgreiðsla fyrir ferðina.
Tala þátttakenda í ferðinni sem gefin er 48 tímum fyrir brottför er sá fjöldi þátttakenda sem mun þurfa að greiða fullt verð og það eru alls engar endurgreiðslur í boði þegar þú aflýsir ferð með 48 klukkustunda fyrirvara.
Hvað gerist ef við aflýsum ferðinni þinni?
Þetta gæti gerst vegna veðurs og vegna færðar á vegum (nú eða þegar það er eldgos).
Allar ævintýraferðir og öll útivist fer eftir veðri og aðstæðum og með þitt öryggi í huga áskiljum við okkur rétt til þess að breyta áætlunum eða aflýsa ferðum.
Hafið í huga að íslensk veðrátta er eins og hún er, veður og aðstæður geta breyst mjög hratt.
Leiðsögumenn okkar eru sérstaklega þjálfaðir til að takast á við síbreytilegar aðstæður og allar þeirra ákvarðanir eru teknar með þitt öryggi efst í huga. Vinsamlegast virðið að leiðsögumenn hafa vald til þess að breyta áætlunum. Þetta á sérstaklega við á veturna, sumarferðir okkar frá júní og út ágúst verða sjaldan fyrir breytingum vegna veðurs.
Ef við neyðumst til að aflýsa ferðinni þinni vegna óviðráðanlegra aðstæðna áður en ferðin hefst færðu 100% endurgreitt. Ef við neyðumst til að breyta áætluninni á einhverjum tímapunkti ferðarinnar eftir að hún hefst gætirðu fengið endurgreitt að einhverju leyti eða enga endurgreiðslu. Þetta fer eftir því hversu langt ferðin var komin þegar breytingarnar áttu sér stað. Þessi endurgreiðsla er sjaldan meira en 50% vegna þess að í flestum tilfellum hefur mesti kostnaður þess að fara í ferðina þegar verið nýttur um leið og ferðin hefst.
Á eigin ábyrgð!
Viðskiptavinir/Þátttakendur verða að hafa í huga að
öll þátttaka er algjörlega á eigin ábyrgð og allir þátttakendur verða að hegða sér eftir reglum
Arctic Adventures,
Arctic Rafting,
Glacier Guides og samstarfsaðilum þeirra og taka ábyrgð á sínu eigin öryggi.
Öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta og Arctic Adventures og samstarfsaðliar þeirra taka ekki ábyrgð á óhöppum sem verða vegna viðskiptavina eða hegðunar þeirra eða verða vegna óviðráðanlegra aðstæðna (náttúruafla). Með því að greiða fyrir ferðina þína ertu að samþykkja þessa skilmála og staðfesta að þú takir ábyrgð á þátttöku þinni í ferðinni. Í sumum ferðum gætirðu þurft að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu.
Click here for English