Leiðsögumenn og starfsfólk Arctic Rafting er eins fjölbreyttur hópur og hann er fjölmennur. Arctic-fjölskyldan, eins og við kjósum að kalla hana þar sem hún er í raun stór vinahópur sem eyðir óeðlilega miklum tíma saman innan og utan vinnu, samanstendur af fólki víðsvegar að landinu og úr heiminum. Allt á þetta fólk það sameiginlegt að vera veraldarvant og ofvirkt þegar kemur að útivist og ferðamennsku og öll deila þau einlægri ástríðu á náttúru landsins og þrá til að kljást við hana og upplifa. Sömuleiðis eru þau öll fagmenn á sínu sviði og hafa einstaka ánægju af því að deila reynslu sinni og þekkingu með öðrum.
Flestir eiga sitt sérstaka áhugamál. Sumir kjósa að eyða frítíma sínum í að kanna og klífa fjöll hérlendis en aðrir kjósa að eyða tímanum sínum erlendis við kayakróður, brimbrettareiðar eða rennsli á snjóbretti og skíðum. Löng hefð er fyrir því meðal starfsmanna fyrirtækisins að fara utan nokkra mánuði á ári yfir vetrartímann, elta uppi drauma sína og ævintýri og sækja sér aukna reynslu í bankann. Á sumrin sameinast síðan þessi mikla reynsla sem velgengi fyrirtækisins og ánægja viðskiptavina byggir á.
Ásamt því að öðlast reynslu og þekkingu á sínum eigin ferðalögum um heiminn sækja allir leiðsögumenn Arctic Rafting sér reglulega menntun og námskeið sem við kemur starfi þeirra. Flestir hafa nú lokið leiðsögumannaskóla, fyrstu hjálp í óbyggðum (Wildernes First Responder) og straumvatnsbjörgun (Swiftwater Rescue Technician) en ofan á þetta eru haldin árleg jökla-, flúðasiglinga-, fyrstu hjálpar- og samhæfinganámskeið á vegum fyrirtækisins.
Eigendurnir eru ævintýramenn í húð og hár og hafa áralanga reynslu á því að halda utan um og reka Arctic fjölskylduna og því sem henni tilheyrir. Þeir hafa þróað með sér sérstakan hæfileika sem felst í því að leysa af hendi óleysanleg verkefni, oft og tíðum við öfgafullar aðstæður í hellum eða flúðasiglingum. Báðir hafa þeir aðlagast skrifstofuvinnunni furðufljótt en freistast þó til að leiðseigja nokkrar ferðir inn á milli tölvu og pappírsvinnu fyrir fersk loft og sálarheill. Frítíma sinn nota þeir síðan eins og annað starfsfólk til að eltast við drauma sína og ævintýri hérlendis og erlendis.
Söluhópurinn er ekki aðeins fríður heldur er hann einnig sérlega fróður um allar þær ferðir sem í boði eru enda hefur hann verið beinn þátttakandi í þeim öllum. Hann ætti því ekki að vera í vandræðum með að aðstoða þig við val á ferð.
Click here for English