Svona kemstu til Hafgrímsstaða (Rafting á Austari og Vestari Jökulsá):
Beint frá Reykjavík til Hafgrímsstaða: Aksturinn tekur um fjórar klukkustundir ef ekið er án þess að stoppa á 90 kílómetra hraða. Ekið er í norðurátt frá Reykjavík á þjóðvegi 1, í gegnum Mosfellsbæ og Borgarnes, framhjá Bifröst, Laugarbakka, Víðigerði og í gegnum Blönduós þar til komið er til Varmahlíðar. Beygt inn á veg nr. 752 rétt áður en komið er inn í byggðina í Varmahlíð. Á honum er ekið í um 10-15 mínútur þar til komið er að bækistöðvum Arctic Rafting á Hafgrímsstöðum. Hafgrímsstaðir eru 5 kílómetrum lengra frá Varmahlíð en Steinsstaðir.
Click here for English