Kanóferð á Hvítá neðan við Gullfoss Þessi ferð er á erfiðleikastiginu 3+ af 5 mögulegum. Kanóferðir eru ný tegund afþreyingar á Íslandi. Kanóarnir eru uppblásnir og losa sig sjálfir við vatn svo þeir sökkva ekki þó þeir velti, þannig að fyrri reynsla af kanósiglingum er ekki nauðsynleg.
2 til 3 geta setið í hverjum bát og stýra honum svo saman niður flúðirnar í Hvítá.
Siglingin sjálf er sjö kílómetrar í gegnum margbreytilegar flúðir og falleg gljúfur. Á um það bil miðri leið er stoppað á Brúarhlöðum þar sem hægt er að stökkva fram af klettum ofan í ána.
Leiðsögumenn eru á raftbát eða kajak skammt frá og fylgjast með gangi mála en grípa ekki inn í nema þess gerist virkilega þörf, hér eiga þátttakendur að takast á við ævintýrið sjálfir.
Hvítá er nálægt Reykjavík, einungis í klukkutíma fjarlægð.
Við mælum með þessari ferð fyrir fólk sem er í góðu líkamlegu ástandi og vill upplifa beint samband við náttúruna, flúðirnar og sjá hvað í þeim sjálfum býr!
Staðfest brottför fyrir minnst 2 þátttakendur er kl. 8:00 og kl.12:00 alla dag sumarsins frá Arctic Adventures skrifstofunni á Laugavegi 11, og kl. 10:00 og 14:00 ef fólk kemur sér sjálft á Drumboddsstaði. Gildir tímabilið frá 15. maí til 15. september.
Frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október er staðfest brottför fyrir minnst 4 þátttakendur kl. 12:00 frá Arctic Adventures skrifstofunni á Laugavegi og kl. 14:00 frá Drumboddsstöðum.
Nánari upplýsingar:
Verð: 9.990 kr á mann ef komið er sjálf/ur á Drumboddsstaði.
Hægt er að fara í gufubað og sturtu eftir siglinguna. 13.490 kr á mann með akstri kl. 8:00 frá Reykjavík.
Innifalið er akstur til og frá Reykjavík, kanósigling niður Hvítá og hádegisverðarhlaðborð. 14.490 kr á mann með akstri kl. 12:00 frá Reykjavík.
Innifalið er akstur til og frá Reykjavík, kanósigling niður Hvítá og grillveisla.
Athugið: Pick–up frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað.
Tímabil: frá 15. apríl til 1. október (Ath. háð veðri og aðstæðum)
Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.
Lengd ferðar: um 3 klst. ef komið er beint á Drumbó en 7 klst. með akstri til og frá Reykjavík.
Lágmark: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. 4 þátttakendur frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október. Hámark :14 þátttakendur.
Aldurstakmark: 18 ár.
Fyrir þau sem koma sjálf á Drumboddsaði er hægt að bæta hádegishlaðborði 1.690 kr. Þið þurfið að láta okkur vita fyrirfram.
Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði, sundföt, föt til skiptanna og hlýja peysu (ull/flís).
Höfuðstöðvar: Drumboddsstaðir ("Drumbó") eru höfuðstöðvar flúðasiglinganna okkar, bærinn er staðsettur í Biskupstungum, rúmlega klukkustund frá Reykjavík.
Kort af leiðinni á Drumbó. Mikilvægar upplýsingar um ferðir á Hvítá: Ath: Þessi ferð hentar sérstaklega vel fyrir þá sem hafa farið í flúðasiglingar á Hvítá eða sambærilegu fljóti áður í og vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Ath: Einstaklingar úr hóp geta valið að fara á kanó á meðan hinir úr hópnum fara í hefðbundna flúðasiglingu, það eina sem þarf að gera til þess er að láta okkur vita fyrirfram.
Hvað er kanó? Kanó er tveggja manna uppblásinn bátur með tveimur þóftum. Hann er sérstaklega búinn uppblásnu gólfi og losar sig sjálfur við vatn. Honum er róið áfram af tveimur farþegum. Kanó er mun minni er raft-bátur og fer því dýpra í öldur og holur, flúðirnar stækka og adrenalín flæðir í ríkara mæli um æðar ferðalanga.
Fyrirvari: Allar kanóferðir eru farnar á eigin ábyrgð þeirra sem taka þátt í ferðinni. Arctic Rafting axlar ekki neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur gætu þurft að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þeir taka sjálfir ábyrgð á með þátttöku sinni í ferðinni.