River Fun: Morning Departure

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
1450 ISK
300 ISK
3500 ISK
Brottfarartími

Open the calendar popup.
1
7990 ISK
49,82 EUR
67,91 USD
ISK
49,82 EUR
67,91 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

River Fun - Rafting á Hvítá á Suðurlandi

Rafting á Hvítá neðan við Gullfoss.
Þessi ferð er á erfiðleikastiginu 2+ af 5 mögulegum.

Hvítá er falleg og fjörug á í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, og við höfum nú í 20 ár starfrækt vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bækistöðvum okkar þar, Drumboddsstöðum eða "Drumbó". Siglingin sjálf er 7 kílómetra leið í gegnum falleg gljúfur og margar mismunandi flúðir. Flúðasiglingarnar á Hvítá henta öllum og vegna þess hversu nálægt Gullna hringnum áin er hefur hún orðið geysivinsæll áfangastaður. Siglingin sjálf byrjar við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið í gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er meðfram stuðlabergi og sérstæðum bergmyndunum og í Brúarhlöðum er tekið stutt hlé þar sem hver sem vill getur stokkið fram af kletti ofan í ána. Þessi sigling er skemmtileg og fjölbreytt og hentar fyrir alla sem eru í ævintýraleit!

Staðfest brottför fyrir minnst 2 þátttakendur alla daga kl. 8:00 og 12:00 frá Arctic Adventures skrifstofunni á Laugavegi 11 eða frá Drumboddsstöðum kl. 10:00 og 14:00 ef fólk velur að koma sjálft á staðinn. Þetta gildir á tímabilinu 15.maí til 15. september. Frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október er staðfest brottför fyrir minnst 4 þátttakendur kl. 12:00 frá Cintamani Center og kl. 14:00 frá Drumboddsstöðum.

Nánari upplýsingar:

Verð:

7.990 kr á mann, ef komið er sjálf/ur á Drumboddsstaði.
 Hægt er að fara í gufubað og sturtu eftir siglinguna.

11.490 kr á mann með brottför kl 8:00 frá Reykjavík.
Innifalið í því er akstur til og frá Reykjavík, flúðasigling og hádegisverðahlaðborð.

12.490 kr á mann með brottför kl. 12:00 frá Reykjavík.
Innifalið í því er akstur til og frá Reykjavík, flúðasigling og grillveisla "Viking BBQ".

Athugið: akstur fá flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað.

Tímabil: Frá 15.apríl til 1. október (Ath. Háð veðri)

Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.

Lengd ferðar: um 3 klst ef komið er beint á Drumbó en 7 klst með akstri til og frá Reykjavík.

Lágmark:
2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. 4 þátttakendur frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október.
Hámark: 200 þátttakendur.

Aldurstakmark: 12 ár til að sigla niður alla ána, 10 ár til að sigla seinni helminginn.

Fyrir þá sem koma sjálfir á Drumboddssaði er hægt að bæta hádegishlaðborði fyrir 1.690 kr.

Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði,sundföt, föt til skiptanna og hlýja peysu (flís eða ull).

Við bjóðum einnig upp á úrval af samsettum ferðum, "combo ferðir", þar sem hægt er að blanda flúðasiglingum og öðrum ferðum saman.

Kort af leiðinni á Drumbó

Mikilvægar upplýsingar um ferðina:

Ath: Á Drumbó er veitingasalur og bar, þar sem boðið upp á ljúffengu grillveisluna “Viking BBQ” fyrir hópa. Þar er líka hægt að halda hádegisverðarfund eða teiti eftir matinn.

Hvað er flúðasigling?
Þátttakendur ferðarinnar sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Hópurinn þræðir svo í sameiningu flúðirnar og gljúfrin í Hvítá. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Þar að auki fá þátttakendur blautskó og gott getur verið að taka með sér ullarsokka eða góða göngusokka (þó það sé ekki nauðsynlegt). Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig siglinga, frá Class II til Class IV+.

Fyrirvari: Allar flúðasiglingaferðir eru farnar á eigin ábyrgð þeirra sem taka þátt í ferðinni. Arctic Rafting axlar ekki neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annara aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur gætu þurft að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þeir taka sjálfir ábyrgð á með þátttöku sinni í ferðinni.


Click here for English