Flúðasiglingar á Hvítá og snjósleðaferð á Langjökli.
Þetta er ein fjörugasta dagsferðin sem við bjóðum uppá. Í þessari skemmtilegu ferð fylgirðu Hvítá frá upptökum hennar á hálendinu við Langjökul og alla leið niður á suðurströndina. Á leiðinni færðu að prófa tvær vinsælustu ævintýraferðir Íslands; flúðasiglingar á Hvítá og snjósleðaakstur á Langjökli.
Lagt er af stað snemma morguns frá Reykjavík og fyrsta stopp er á Drumboddsstöðum, eða „Drumbó“, við Hvítá þar sem bækistöðvar flúðasiglinganna okkar eru staðsettar. Ævintýrið byrjar þegar allir eru rétt útbúnir og tilbúnir í slaginn og leiðsögumenn eru búnir að útskýra helstu öryggisatriði flúðasiglinganna. Í Hvítá og gilinu sem hún rennur í gegnum blandast mikil náttúrufegurð saman við fjörið og ánægjuna sem fæst úr siglingunni sjálfri. Þú getur meira að segja fengið að hoppa niður af gljúfurbakkanum ofan í jökulána ef þig langar það!
Eftir siglinguna borðum við hádegismat á Drumbó áður en við leggjum af stað upp á hálendið. Á Langjökli förum við í hlý útiföt og góða skó og lærum síðan undirstöðuatriði snjósleðaaksturs á jöklum. Við brunum síðan af stað á sleðunum á næst stærsta jökli Íslands, sem er í raun samsettur af fjöldamörgum eldgígum sem þaktir eru ís.
Útsýnið frá Langjökli er stórkostlegt og snjósleðaaksturinn er spennandi leið til að upplifa íslenska náttúru.
Boðið er upp á akstur á miðvikudögum og laugardögum frá miðbæ Reykjavíkur, sótt er á milli klukkan 08:00 og 08:30. Þetta gildir fyrir tvo þátttakendur (aðra daga minnst 4 þátttakendur), tímabilið 15. maí til 15. september.
Þú getur komið á Arctic Adventures skrifstofuna okkar klukkan 08:00, á Laugavegi 11, til að fara um borð í bílinn sem flytur þig út á land.
Nánari upplýsingar:
Verð: 33.990 kr á mann
Þetta verð miðast við tvo farþega saman á snjósleða. Til að fá sér sleða er hægt að bæta við 4.000 kr á mann.
Verðið miðast einnig við flúðasiglingu í hefðbundnum raftbát, ef þú vilt enn meiri hasar í ferðina geturðu farið á kanó fyrir 2.000 krónur aukalega.
Innifalið í verði : akstur frá Reykjavík og tilbaka, flúðasigling á Hvítá, hádegisverður á Drumbó og klukkutíma snjósleðaferð á Langjökli.
Lengd ferðar: 12 klukkustundir.
Tímabil: frá 15. maí til 15. september (fer eftir veðri og aðstæðum).
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 2 þátttakendur á miðvikudögum og laugardögum, 4 þátttakendur aðra daga.
Aldurstakmark: 10 ár fyrir að fara á snjósleða, 12 ár til að sigla niður alla ána, 10 ár til að sigla niður seinni helminginn.
Taktu með þér: Fyrir flúðasiglingarnar: sundföt, hlýja peysu (ull eða flís), föt til skiptanna og handklæði.
Fyrir snjósleðaferðina: hlý útiföt og gæoða skó (hægt er að fá lánaðan kraftgalla hjá okkur).
Nauðsynlegt: Gilt ökuskírteini til að aka snjósleðanum. Engin fyrri reynsla af flúðasiglingum eða snjósleðum er nauðsynleg.
Athugið: Allar ævintýraferðir eru farnar á eigin ábyrgð þátttakenda. Arctic Adventures tekur ekki ábyrgð á óhöppum sem verða vegna þátttakenda eða framferði þeirra í ferðinni. Þátttakendur gætu þurft að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu áður en ferð hefst þess efnis að þeir geri sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir allri útivist.
Lestu samningsákvæði okkar.
Click here for English