Dagsferð sem sameinar Fjórhjólaferð og Flúðasiglingu á Hvítá.
Þessi ferð er á erfiðleikastiginu 3 af 5 mögulegum.
Ferðin hefst á Bláfjallasvæðinui þar sem við förum á fjórhjólum um fáfarna slóða í Jósepsdalnum. Hægt er að velja um að vera tveir farþegar saman á hjóli og deila akstrinum eða að vera einn á hjóli.
Þegar fjórhjólaakstrinum er lokið fáum við okkur snarl á Litlu Kaffistofunni og höldum síðan áfram á Drumboddsstaði þar sem okkar bíður flúðasigling niður Hvítá. Hvítá er falleg og fjörug á í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, og við höfum nú í yfir 25 ár starfrækt vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bækistöðvum okkar þar, Drumboddsstöðum eða "Drumbó".
Siglingin sjálf er 7 kílómetra leið í gegnum falleg gljúfur og margar mismunandi flúðir. Flúðasiglingarnar á Hvítá henta öllum og vegna þess hversu nálægt Gullna hringnum áin er hefur hún orðið geysivinsæll áfangastaður. Siglingin sjálf byrjar við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið í gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er meðfram stuðlabergi og sérstæðum bergmyndunum og í Brúarhlöðum er tekið stutt hlé þar sem hver sem vill getur stokkið fram af kletti ofan í ána.
Fyrir þá sem vilja stærri skammt af adrenalíni er hægt að fá að sigla niður Hvítá í kanó í stað raftbátar fyrir auka 2.000 kr. Eftir siglinguna er svo hægt að skella sér í gufubað og sturtu áður en notið verður lambagrills og meðlætis.
Staðfest brottför fyrir minnst 2 þátttakendur er alla daga kl. 9:00 frá Arctic Adventures skrifstofunni á Laugavegi 11. Þetta gildir á tímabilinu 15.maí til 15.september. Frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október er staðfest brottför alla daga fyrir minnst 4 þátttakendur.
Nánari upplýsingar:
Verð: 22.990 kr á mann.
Verðið miðast við 2 á hverju hjóli, þú getur fengið eigið hjól fyrir 2.500 kr aukalega.
Til að fá meira fjör og fara niður Hvítá í kanó er bætt við 2.000 krónum.
Í boði: frá 15. apríl til 1. október (Athugið að það er háð veðri).
Innfalið í ferðinni: Fjórhjólaferð, hádegisverður, flúðasigling á Hvítá, akstur og grillveisla á Drumbó.
Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.
Heildarlengd ferðar: 11 klst.
Lágmark: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15 september. Frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október er lágmark 4 þátttakendur. Hámark 60 þátttakendur.
Aldurstakmark: 10 ár til að vera farþegi á fjórhjóli,12 ára til að sigla niður alla ána, 10 ára til að sigla seinni helminginn.
Þátttakendur verða að taka með sér: hlý útiföt, gönguskó, vatnsheldan jakka og buxur (við lánum vatnsheld föt fyrir fjórhjólin), handklæði,sundföt, föt til skiptanna og hlýja peysu (flís/ull).
ATH. Ökumenn fjórhjólanna verða að vera með gilt ökuskírteini með sér.
Fyrirvari: Allar flúðasiglingaferðir eru farnar á eigin ábyrgð þeirra sem taka þátt í ferðinni. Arctic Adventures taka ekki neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur gætu þurft að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þeir taka sjálfir ábyrgð á með þátttöku sinni í ferðinni.
Click here for English