Þessi ferð á sér öruggar brottfarir alla þriðjudaga fyrir að lágmarki 4 þátttakendur frá 26. júní til 28. ágúst og að lágmarki 8 þátttakendur frá 1. september til 10. september.
Nánari upplýsingar: Verð: 69.990 kr á mann, án aksturs.
76.990 kr á mann, með akstri frá Akureyri
89.990 kr á mann, með akstri frá Reykjavík.
Mælt er með því að þátttakendur hafi einhverja reynslu af flúðasiglingum eða hafi mikinn eldmóð fyrir ævintýrum!
Innifalið í verði: Akstur fram og til baka frá Reykjavík eða Akureyri, gisting í tvær nætur í skálum á hálendinu með vistum, tveir dagar af frábærum flúðasiglingum niður Austari Jökulsá, grillveisla síðasta daginn, aðgangur að heitum pottum og stútfullur hugur af góðum minningum!
Frá Reykjavík: Hægt er að bóka akstur alla þriðjudaga frá 26. júní til 28. ágúst klukkan 8:30 frá BSÍ rútustöðinni. Vinsamlegast mætið 20 mínútum fyrir brottför. Lengd aksturs: 4 klukkustundir. Koma til Reykjavíkur er áætluð klukkan 23:10 að kvöldi þriðja dags.
Frá Akureyri: Hægt er að bóka akstur alla þriðjudaga frá 26. júní - 28. ágúst klukkan 8:30 frá SBA rútustöðinni. Vinsamlegast mætið 20 mínútum fyrir brottför. Lengd aksturs: 1 klukkustund. Koma til Akureyri er áætluð klukkan 22:50 að kvöldi þriðja dags.
Vegalengd frá Reykjavík: 294 km.
Lengd ferðar: Þrír heilir dagar, 2 dagar í flúðasiglingu.
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4 þáttakendur alla þriðjudaga frá 26. júní - 28. ágúst. 8 þátttakendur frá 1. september til 10. september.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 24 manns.
Aldurstakmark: 18 ára.
Vinsamalegast hringið í okkur eða sendið okkur tölvupóst til að athuga hvort þið getið skráð ykkur í ferðina!
Útbúnaðarlisti: - Fatnaður fyrir ána: Létt og hlý undirföt (föðurland) úr ull eða flís (alls ekki úr bómull).
- Fatnaður fyrir skála: Hlý og þægileg föt, gönguskór og vatnsheldur jakki.
- 3 pör af aukasokkum
- Svefnpoki
- Snyrtivörur (tannbursti, tannkrem og svo framvegis)
- Öll nauðsynleg lyf (ef við á, asthma púst og svo framvegis)
- Sundföt og handklæði fyrir laugar og potta
- Vatnsheld myndavél (valfrjálst, en við mælum með því)
* Vinsamlegast athugið að á meðan við erum í siglingunni er öllum persónulegum búnaði pakkað í plast- og þurrpoka og sett um borð í bátana sem siglt er á. Við getum ekki ábyrgst öryggi eigna ykkar um borð og því hvetjum við ykkur til þess að taka ekki með verðmæta hluti að óþörfu. Vegna plássleysis um borð hvetjum við þátttakendur einnig til þess að taka ekki óþarfa farangur með í ferðina.
Nákvæmari lýsing á ferðinni: Dagur 1: Brottför er kl. 8:30 frá BSÍ í Reykjavík eða SBA á Akureyri með rútu til Varmahlíðar. Í Varmahlíð (4 klst frá Reykjavík og 1 klst frá Akureyri) sækjum við ykkur þar sem þið stigið út úr rútunni og ökum 14,5 km til Hafgrímsstaða. Þar hittið þið leiðsögumennina og aðra bátsfélaga ferðarinnar og við förum yfir dagskrá ferðarinnar. Á Hafgrímsstöðum mátum við þurrgallana og allan nauðsynlegan búnað og við útvegum ykkur einnig þurrpoka fyrir persónulegar eigur. Þegar búið er að sjá til þess að allir séu rétt búnir fyrir ferðina leggjum við af stað í leiðangurinn! Næstu fjóra klukkutímana ökum við á fjallvegi inn á hálendi Íslands þar sem við njótum einstakrar náttúru og höfum útsýni yfir glæstan Hofsjökulinn á sjóndeildarhringnum. Þegar við komum í skálana í Laugarfelli matreiðum við dýrindis máltíð og svo slökum við á í náttúrulegum heitum laugum og njótum miðnætursólarinnar. Ljúfur og góður svefn í skálum hálendis Íslands undirbýr okkur fyrir viðburðaríka daga framundan.
Dagur 2: Við vöknum við ilm af kaffi og snæðum orkuríkan morgunverð. Þegar við höfum pakkað öllu og gengið frá leggjum við af stað og ökum í um tuttugu mínútur á grófum fjallvegi þar til við komum að ánni. Hér afhlaða leiðsögumenn bílinn og gera bátana og allan nauðsynlegan búnað tilbúinn. Á meðan fer yfirleiðsögumaðurinn yfir öll helstu öryggisatriði og fer vel yfir það hvernig eigi að beita sér í ánni og um borð í bátunum. Þá erum við klár í að skella okkur í ána! Fyrsta klukkutímann fljótum við létt niður á hvítu vatni jökulárinnar. Þennan tíma nýtir leiðsögumaður hvers báts til þess að búa ræðarana undir átök við flúðirnar sem eru framundan með nokkrum æfingum þar til leiðsögumaður telur alla um borð vera með á nótunum og tilbúna til þess að róa saman sem eina heild. Þegar hasarinn hefst er hann nánast linnulaus stærstan hluta dagsins. Halli árinnar eykst skyndilega og þegar þið mætið mjög krefjandi flúðum á erfiðleikastiginu 3-4+ af 5 mögulegum fer í gang stanslaust átak sem kemur til með að reyna á bæði taugar og vöðva! Eftir um það bil 3 klukkustundir róast áin og þá fáum við tækifæri til þess að borða hádegisverð, hvílast og hlaða batteríin. Það er um það bil klukkutíma löng róleg sigling í næsta náttstað við ána í skála. Í skálanum fáum við okkur kvöldmat og eyðum kvöldinu í góðum félagsskap á meðan við segjum hetjusögur af sjálfum okkur eftir daginn og undirbúum okkur fyrir hamagang morgundagsins.
Dagur 3: Fyrsti hlutinn af ánni þennan dag byrjar með léttri upphitun í gegnum grænan og gróðursælan Austurdalinn. Eftir um klukkutíma breytist landslagið all snögglega og svakalega. Á meðan við erum að hamast við að komast í gegnum neðri hluta gljúfurs Austari Jökulsár förum við að taka eftir augljósum andstæðum í landslagi og flúðum frá deginum á undan. Útsýnið er eitt það besta sem Ísland býður upp á í flúðasiglingum, þar sem áin hefur grafið 80 metra djúpt gljúfrið. Næstu tvo tímana má búast við stöðugu adrenalínflæði við það að dúndra í gegnum hverja risa ölduna á fætur annarri og við dembum okkur niður brattar og krefjandi flúðir á erfiðleikastiginu 3-4+ af 5 mögulegum. Þegar við erum komin heilu og höldnu í gegnum stærstu flúðirnar tökum við bátana á land og fáum okkur hádegisverð. Við getum jafnvel fleygt okkur ofan af kletti í ána. Síðan siglum við síðustu kílómetra Austari Jökulsár þar til hún rennur saman við Vestari Jökulsá. Hér er síðasta tækifærið til þess að festa náttúrufegurðina í minninu, slaka á í bátnum eða taka síðustu dýfuna út í ískalda og hressandi ána! Þegar til Varmahlíðar er komið verðum við verðlaunuð með kveðjupartýi, heitum potti, vínglasi og grillveislu með leiðsögumönnum og bátsfélögum.
Samningsákvæði: Allar flúðasiglingar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins staðfesta þátttakendur að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.
Click here for English