Beast of The East - Jökulsá Austari

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
300 ISK
Open the calendar popup.
2
13490 ISK
84,12 EUR
114,65 USD
ISK
84,12 EUR
114,65 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Beast of the East - Rafting dagsferð á Jökulsá Austari i Skagafirði

Rafting á Austari Jökulsá í Skagafirði
Þessi ferð er á erfiðleikastiginu 4+ af 5 mögulegum.

Í þessari ferð er von á ótrúlegu adrenalínpökkuðu ævintýri á Austari Jökulsá fyrir norðan í Skagafirði.  Áin, sem er á erfiðleikastiginu 4+ af 5 mögulegum ryður leið sína í gegnum Austurdal, þar sem gljúfrið er þekkt fyrir að vera sérstaklega fallegt. Siglingin hefur ítrekað verið valin sem eitt það besta sem hægt er að gera á Íslandi og það er alls ekki að ástæðulausu!  Rafting í Jökulsá Austari býður einfaldlega upp á bestu rafting reynslu sem hægt er að fá á Íslandi og þykir ein af bestu siglanlegu ám í allri Evrópu!

Athugið samt að þetta er ekki ferð fyrir fólk með lítið hjarta.  Áin tekur á móti þér með kraftmiklum drunum og fossandi flúðum.  Það eina sem kemur til með að renna hraðar en áin verður adrenalínið í æðunum þegar við dúndrum á hverja flúðina á fætur annari. Þú átt eftir að öskra úr þér lungun í "Screaming lady", verða orðlaus í "Lost", biðja um miskunn í "Græna herberginu" og horfast í augu við óttann í 8 metra háu klettastökki ofan í ána (þetta er ekki skylda og fer eftir aðstæðum í ánni hverju sinni).  Við náum okkur svo niður úr adrenalínvímunni með því að fljóta og synda niður með ljúfum straumum þar sem Jökulsá Austari og Vestari mætast þar til við komum að endastöðinni.

Það er sem sagt mikill hasar að bjóða Jökulsá Austari birginn, en þið vinnið ykkur inn ævilangan montrétt ásamt óendanlegri skemmtuninni sem þið komið aldrei til með að gleyma!

Það eru staðfestar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur frá 1. júní - 31. ágúst og minnst 4 þátttakendur frá 1. september til 10. september:

Frá Skagafirði:

-Hafgrímsstaðir:  Ferðir eru sunnudaga - föstudaga kl. 13:00. Á laugardögum eru brottafarir kl. 9:00 og kl. 15:00.

-Varmahlíð: Ferðir eru sunnudaga - föstudaga kl. 12:30. Á laugardögum eru brottfarir kl. 8:30 og 14:30.

Frá Akureyri:  
Ferðir eru sunnudaga - föstudaga  kl 8:30 frá Sterna rútustöðinni.


Nánari upplýsingar:
Verð:
13.490 kr á mann, án aksturs.
21.990 kr á mann með akstri frá Akureyri.


Mælt er með því að þátttakendur hafi einhverja reynslu af flúðasiglingum eða hafi mjög mikla ævintýraþrá!


Ferð frá Akureyri:
Innifalið í verði er akstur frá SBA rútustöðinni á Akureyri, grill eftir siglinguna og akstur aftur kl 21:55 til Akureyrar. Hægt er að bæta við ferðina tveggja klukkustunda hestaferð fyrir 7.500 kr á mann. Frá Akureyri er komið í Varmahlíð kl. 9:45 og nægur tími gefst til að njóta Skagafjarðarins á hestbaki fyrir flúðasiglinguna (ath. ekki í boði á laugardögum).

Vegalengd frá Reykjavík: 294 kílómetrar. 

Lengd ferðar: 6-7 klst. 

Þátttaka:
Minnst 2 þátttakendur frá 1. júní til 31. ágúst og minnst 4 þátttakendur frá 1. september til 10.september. Mest 50 manns í hverja ferð. 

Aldurstakmark:
18 ára. 

Takið með ykkur:
Hlýja peysu og buxur (ull eða flís),hlýja sokka, sundföt, föt til skiptanna og handklæði.
 
Annað: Handklæði: 300 ISK Vatnsheld myndavél: 3.000 ISK

Samningsákvæði: Allar flúðasiglingar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni.  Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins staðfesta þátttakendur að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.  

Click here for English